Ljóðabókinni VELÚR eftir Þórdísi Gísladóttur, verður fagnað í Eymundsson, Skólavörðustíg, klukkan fimm í dag. Velúr er önnur ljóðabók Þórdísar, en hún fékk bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína, Leyndarmál annarra. Þórdís er í skemmtilegu viðtali við Fréttablaðið í dag, þar sem fram kemur að hún er Hafnfirðingur í marga ættliði, en hefur búið í
Nýjasta bókin í neon heitir Beðið fyrir brottnumdum. Hún er eftir amerísku skáldkonuna Jennifer Clement, sem hefur löngum verið búsett í Mexíkó, og kom fyrst út á ensku í vor. Hún er væntanleg á yfir 20 tungumálum. Þetta er reglulega falleg – og átakanleg – bók, um örlög fátæks fólks í afskekktu þorpi í Mexíkó.
Út er komin hjá Veröld bókin Amma biður að heilsa eftir Fredrik Backman, höfund metsölubókarinnar Maður sem heitir Ove. Elsa er sjö ára og býr með mömmu sinni og ömmu í fjölbýlishúsi. Elsa er öðruvísi en flest önnur börn og amma hennar er engin venjuleg amma. Í ljós kemur að íbúarnir í húsinu búa yfir
Út er komin hjá Veröld bókin Uggur eftir Úlfar Þormóðsson. Margreyndur rithöfundur fær óvænta höfnun sem leiðir til þess að hann missir fótanna. Lesandinn slæst í för með Úlfari Þormóðssyni þar sem hann berst við þetta mótlæti, rifjar upp bæði ljúfar og sárar minningar, auk þess sem honum er fylgt eftir í hringiðu samtímans. Uggur er
Sálfræðitryllirinn Öngstræti er nýkomin út hjá Bjarti. „Áhrifarík skáldaga, að sumu leyti vegna þess hvernig hún varpar ljósi á hæfileika mannsins til sjálfsblekkingar,“ sagði stórblaðið Guardian. „Doughty hefur sérstakan hæfileika til að skrifa sögur sem vekja mann til umhugsunar, fá mann til að spyrja stórra spurninga um okkur sjálf, um samböndin sem við erum í og