Amma biður að heilsa

Fréttir Uncategorized

Amma biður að heilsa

Út er komin hjá Veröld bókin Amma biður að heilsa eftir Fredrik Backman, höfund metsölubókarinnar Maður sem heitir Ove. Elsa er sjö ára og býr með mömmu sinni og ömmu í fjölbýlishúsi. Elsa er öðruvísi en flest önnur börn og amma hennar er engin venjuleg amma. Í ljós kemur að íbúarnir í húsinu búa yfir mögnuðum örlagasögum sem Elsa flækist inn í og átakanleg en um leið bráðfyndin atburðarás fer af stað. Amma biður að heilsa er einstök saga um ofurhetjur úr hversdagslífinu sem eiga erfitt með að fóta sig í veruleikanum eftir höfund metsölubókarinnar Maður sem heitir Ove sem sló rækilega í gegn.

 

 „Hittir beint í mark. Bækur sem fá mig bæði til að hlæja og gráta verðskulda hæstu einkunn.“ Expressen Söndag

 

***** Adlibris.se

 

„Með því besta sem ég hef lesið lengi.“  LitteraturMagazinet

 

„Fredrik Backman fær mann til að hlæja, syrgja og gleðjast – og fella tár.“ Svenska Dagbladet


Eldri fréttir Nýrri fréttir