Út er komin hjá Veröld bókin Hamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi eftir Inga Frey Vilhjálmsson. Í bókinni er fjallað um ótrúlegt tímabil í sögu þjóðarinnar, árin þegar allt varð falt. Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður afhjúpar hvernig stór hluti þjóðarinnar – þar á meðal fjölmiðlar, fræðimenn, listamenn og stjórnmálamenn – steig dans með íslenskum auðmönnum í blindri trú á endalaust góðæri á árunum fyrir hrun.
Ingi Freyr fer hér um ólík svið íslensks þjóðlífs og dregur fram óþægilegar sögur sem legið hafa í þagnargildi – og hlífir hvorki sjálfum sér né öðrum.
Hamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi er ómissandi bók fyrir alla þá sem vilja að heiðarlegt uppgjör fari fram um ábyrgðina á hruninu og aðdraganda þess svo dreginn verði lærdómur af því til framtíðar.
Hamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi er 288 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.