VILTU VERÐA METSÖLUHÖFUNDUR?

VILTU VERÐA METSÖLUHÖFUNDUR?

Rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson stofnuðu í fyrra til sérstakra glæpasagnaverðlauna sem nefnast Svartfuglinn í samvinnu við útgefanda sinn, Veröld. Eva Björg Ægisdóttir hlaut verðlaunin í ár fyrir sögu sína Marrið í stiganum sem kom út í apríl. Bókin fór strax í efsta sæti á mestölulista Eymundsson og hefur verið á metsölulistanum síðan. Verðlaunin eru veitt fyrir handrit að áður óbirtri glæpasögu og er við það miðað að sagan komi út hjá Veröld í upphafi Viku bókarinnar í apríl ár hvert. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig býðst þeim sem sigur ber úr býtum samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015.

Yrsa og Ragnar skipa dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar. Handitum skal skilað í þríriti til Veraldar að Víðimel 38, 107 Reykjavík, fyrir 1. janúar næstkomandi. Þau eiga að vera merkt dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Höfundurinn má ekki hafa gefið út glæpasögu áður. Þegar dómnefndin hefur lokið störfum sínum verður haft samband við verðlaunahöfundinn. Handritunum sem bárust í keppnina verður síðan eytt.

Yrsa og Ragnar segjast með þessum verðlaunum vilja hvetja höfunda til að spreyta sig á þessu bókmenntaformi, greiða þeim leið til útgáfu og stuðla að því að fleiri skrifi bækur á íslenskri tungu. Jafnframt vonast þau til að verðlaunin hjálpi nýjum höfundum að komast að hjá erlendum bókaforlögum.

Yrsa Sigurðardóttir sendir í haust frá sér sína fjórtándu glæpasögu. Bækur hennar koma út á yfir þrjátíu tungumálum í öllum byggðum heimsálfum veraldar. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir glæpasögur sínar, s.s. Blóðdropann – Íslensku glæpasagnaverðlaunin, Dönsku glæpasagnaverðlaunin og Petrona-verðlaunin fyrir bestu norrænu glæpasöguna í Bretlandi.

Í haust kemur út tíunda glæpasaga Ragnars Jónassonar. Bækur hans eru nú gefnar út á um tuttugu tungumálum. Verk hans hafa verið tilnefnd til fjölda verðlauna, hann hlaut m.a. Mörda-verðlaunin fyrir bestu þýddu glæpasöguna í Bretlandi. Áður en Ragnar hóf sjálfur að senda frá sér bækur þýddi hann fjórtan glæpasögur Agöthu Christie


Eldri fréttir Nýrri fréttir