Tröllastrákur Sirrýjar

Fréttir

Tröllastrákur Sirrýjar

Út er komin hjá Veröld bókin Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað eftir Sigríði Arnardóttur, Sirrý

Tröllastrákurinn Vaki leikur sér í sveitinni allan liðlangan daginn en þegar nóttin læðist yfir sveitina fer allt að titra og skjálfa. 

Foreldrar Vaka hrjóta svo hátt og ógurlega í hellinum að hvorki Vaki né dýrin í sveitinni geta sofið. Ekki fyrr en hann finnur snilldarlausn á þessum vanda!

 Bráðskemmtileg saga eftir Sigríði Arnardóttur – Sirrý – með gullfallegum og líflegum myndum Freydísar Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur með lestri Kristjáns Franklín Magnúss leikara á sögunni.

Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað er 30 blaðsíða að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Odda.


Eldri fréttir Nýrri fréttir