Sögur af litríkum samferðamönnum

Fréttir

Sögur af litríkum samferðamönnum

Út er komin hjá Veröld Guðni – Léttur í lund eftir Guðna Ágústsson. Guðni er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi. Hann er annálaður sagnamaður og njóta fáir viðlíka vinsælda sem tækifærisræðumenn og hann, auk þess sem miklar sögur hafa lengi gengið um hann sjálfan.

Í þessari bráðskemmtilegu bók segir Guðni með sínum kjarnyrta hætti sögur af forvitnilegu fólki sem hann hefur mætt á lífsleiðinni – og sjálfum sér.

Hér stíga fram á sviðið óþekktir bændur úr Flóanum jafnt sem þjóðkunnir stjórnmálamenn af öllum stærðum og gerðum. Í bókinni eru sögur af kynlegum kvistum og vammlausum embættismönnum, skagfirskum indíána, mögnuðum draugagangi, flótta út um þakglugga, manndrápsferð til Kína, afdrifaríku fallhlífarstökki og eftirminnilegar vísur – svo eitthvað sé nefnt. Þá segja ýmsir þjóðþekktir menn litríkar sögur af Guðna.

Guðni – Léttur í lund er sannkallaður lífsins elixír sem bætir, hressir og kætir! 

Guðni – Léttur í lund er 251 blaðsíða að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Jón Ásgeir hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda.


Eldri fréttir Nýrri fréttir