Ómissandi á hvert náttborð!

Fréttir

Ómissandi á hvert náttborð!

Út er komin hjá Veröld bókin Draumaráðningar frá A-Ö eftir Símon Jón Jóhannsson. Draumaráðningar A-Ö er nýtt og aðgengilegt uppflettirit um efni sem allir hafa áhuga á og leiða hugann að. Bókin er í senn fræðandi og skemmtileg og höfðar jafnt til yngri sem eldri lesenda er áhuga hafa á draumspeki. Og öll dreymir okkur eitthvað! Hér er að finna ráðningar á hátt í fjögur þúsund draumtáknum sem raðað er í stafrófsröð. Táknin eru af öllu tagi, ýmist úr daglegu lífi eða sjaldgæfari tákn. Þau taka til ólíkra sviða mannlífsins, allt frá skartgripum til samfélagsmiðla og kirkju til kynlífs. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda mannanafna og merkingu þeirra í draumum.

 

Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur hefur ritað fjölda bóka um drauma og draumaráðningar sem notið hafa mikilla vinsælda.

 

Draumaráðningar frá A-Ö er 379 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.


Eldri fréttir Nýrri fréttir