Næsta neonbók er Hin órólegu

Næsta neonbók er Hin órólegu

Í byrjun apríl fá neonfélagar senda bókina Hin órólegu eftir Linn Ullmann.
Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda fyrir hönd Noregs árið 2016.

Faðir og dóttir sitja með upptökutæki á milli sín. Þau ætluðu að vinna að bók um það að eldast, um ellina. En þegar vinnan fer loksins af stað hefur ellin náð á honum slíku taki að samtölin verða ómarkviss og fara út um víðan völl.
Hin órólegu er óvenjuleg og leitandi saga sem leikur sér að hinum ýmsu bókmenntaformum – um barn sem getur ekki beðið eftir því að verða fullorðið, foreldra sem helst vilja vera börn, um minni og gleymsku og hinar mörgu sögur sem mynda eitt líf.

Ingibjörg Eyþórsdóttir þýddi.


Eldri fréttir Nýrri fréttir