„Meistaraverk“

Fréttir

„Meistaraverk“

Út er komin hjá Bjarti bókin Leitin að svarta víkingnum eftir Bergsvein Birgisson. Einn leyndardómur íslenskra fornsagna eru örstutt brot um „svartleitan“ mann sem þar bregður fyrir – Geirmund heljarskinn. Hann er sagður dökkur og ljótur, með mongólska andlitsdrætti af konunglegum uppruna, sagður „göfgastur landnámsmanna“ og ríður um sveitir Íslands með áttatíu vígamenn, og á mörg stórbú þar sem hann heldur mörg hundruð þræla.
En hver var Geirmundur heljarskinn? Af hverju er engin saga varðveitt af honum og af hverju hefur hann nánast fallið í gleymsku?
Hér tekur Bergsveinn Birgisson lesandann með sér í heillandi ferðalag um forna tíma og fjarlæg lönd – en einnig á slóðir Geirmundar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Með því að rýna í skjöl, fornleifar og nýta nýjustu tækni kviknar fortíðin til lífs og púslin raðast saman í spennandi frásögn, sem er skrifuð af þekkingu, skáldlegum innblæstri og stílgáfu.
Fyrsta útgáfa af Leitinni að svarta víkingnum kom út á norsku og hlaut frábærar viðtökur. Bergsveinn er doktor í norrænum fræðum við háskólann í Bergen í Noregi og hefur skrifað jöfnum höndum skáldverk og fræðirit. Þekktasta verk hans er Svar við bréfi Helgu sem varð metsölubók og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

„Meistaraverk.“ Aftenposten


Eldri fréttir Nýrri fréttir