Út er komin hjá Veröld bókin Tröllastrákurinn læknar hrekkjusvín eftir Sigríði Arnardóttur, Sirrý. Tröllastráknum Vaka og Sögu vinkonu hans finnst fátt skemmtilegra en að smíða kofa og það er alltaf eitthvað spennandi að gerast í litla kofaþorpinu þeirra. Hrekkjusvín vinna skemmdarverk á kofunum í skjóli nætur og Vaki og Saga fyllast reiði og örvæntingu. Óvæntur atburður verður síðan til þess að allir þurfa að standa saman og hjálpast að.
Tröllastrákurinn læknar hrekkjusvín er í senn spennandi og lærdómsrík bók eftir Sigríði Arnardóttur, Sirrý, skreytt líflegum og grípandi myndum Freydísar Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur þar sem Kristján Franklín Magnús leikari les söguna.
Tröllastrákurinn læknar hrekkjusvín er 29 blaðsíður að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Slóveníu.