Hálfsnert stúlka

Fréttir

Hálfsnert stúlka

Út er komin hjá Veröld skáldsagan Hálfsnert stúlka eftir Bjarna Bjarnason. Útgáfuréttur á bókinni hefur þegar verði seldur til Bretlands. Ung kona finnst illa til reika eftir ellefu ára dvöl í afskekktum skógi í Ástralíu. Sálgreinandi fær það flókna verkefni að komast að því hvað gerðist. Í samtölum þeirra hverfur hún inn í draumkennda frásögn sem hann þarf að túlka og vinna úr. Þegar í ljós kemur hvað gerðist í raun og veru fer af stað óvænt atburðarás.

 

Bjarni Bjarnason hefur hlotið mikið lof og fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldsögur sínar og meðal annars verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

 

Hálfsnert stúlka er heillandi og margslungin saga.

 

„Einn athyglisverðasti höfundur sinnar kynslóðar á Íslandi.“ World Literature Today

 

Hálfsnert stúlka er 248 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.


Eldri fréttir Nýrri fréttir