Fimm stjörnu heimskautakrimmi

Fréttir

Fimm stjörnu heimskautakrimmi

Út er komin hjá Veröld spennusagan Flúraða konan eftir Mads Peder Nordbo. Þegar lík af fornum víkingi finnst í ísnum í Grænlandsjökli er útlit fyrir að hið litla samfélag í Nuuk muni verða miðpunktur heimssögulegra tíðinda. Danski blaðamaðurinn Matthew Cave er sendur á vettvang en málið tekur óvænta stefnu þegar líkamsleifar víkingsins hverfa og lögreglumaður sem vaktaði þær finnst myrtur.

Þegar Matthew fer að grafast fyrir um málið kemst hann á snoðir um fjögur óupplýst morð frá árinu 1973 sem framin voru með samskonar hætti. Ekki er öllum vel við eftirgrennslan hans og sú eina sem hann getur treyst er ung kona sem var að losna úr fangelsi fyrir að hafa myrt föður sinn.

Flúraða konan er áhrifamikil og grípandi saga um illsku og fjölskylduharmleik. Útgefendur um allan heim bitust um réttinn áður en bókin kom út en hún hefur fengið frábæra dóma. Mads Peder Nordbo hefur búið á Grænlandi í fjölda ára og gjörþekkir grænlenskt samfélag.

***** – Adresseavisen, Noregi

**** - Fyens Stiftstidende, Danmörku

„Hádramatísk“ – JyllandsPosten

***** „Brjálæðislega spennandi.“ – Bogfidusen

Flúrða konan er 357 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Marcin Kicki hannaði kápu. Bókin er prentuð í Danmörku.


Eldri fréttir Nýrri fréttir