Einlæg, grípandi og ögrandi

Einlæg, grípandi og ögrandi

Út er komin hjá Veröld skáldsagan Að eilífu ástin eftir Fríðu Bonnie Andersen. Ung íslensk alþýðustúlka brýst til mennta í fatahönnun í París á fjórða áratug síðustu aldar. Þar upplifir hún frjálslynda strauma millistríðsáranna, sogast inn í hringiðu hins ljúfa lífs og kynnist dimmum sölum bak við djúprauð flauelstjöld.

Á endanum hrekst hún aftur til Íslands þar sem líf hennar fléttast saman við líf ljósmóðurnema úr betri borgarastétt. Á meðan síðari heimsstyrjöldin er í algleymingi eiga sér stað mikil og afdrifarík átök í lífi þessara kvenna.

Að eilífu ástin er fyrsta skáldsaga Fríðu Bonnie Andersen. Þetta er einlæg, grípandi og ögrandi saga sem heldur lesandanum föngnum í mögnuðum söguheimi.

„Heillandi yndislestur. Njótið þess að lesa bókina, það gerði ég svo sannarlega.“ – Guðrún Ögmundsdóttir

Að eilífu ástin er 276 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Jón Ásgeir hannaði kápu.


Eldri fréttir Nýrri fréttir