Út er komin hjá Veröld glæpasagan Drungi eftir Ragnar Jónasson. Haustið 1987 fer ungt par í rómantíska ferð í sumarbústað á Vestfjörðum – ferð sem fær óvæntan endi og hefur skelfilegar afeiðingar.
Tíu árum síðar ákveður lítill vinahópur að verja helgi í gömlum veiðikofa í Elliðaey, nánast sambandslaus við umheiminn. Í lok dvalarinnar lætur kona úr hópnum lífið og margt bendir til þess að hún hafi verið myrt.
Lögreglukonan Hulda Hermannsdóttir, sem lesendur kynntust í metsölubókinni Dimmu, rannsakar andlát konunnar og fyrr en varir fer málið að vinda upp á sig.
Útgáfurétturinn á Drunga hefur þegar verið seldur til hins virta breska útgáfufyrirtækis Penguin og þarlendur framleiðandi undirbýr nú þáttaröð byggða á bókum Ragnars. Náttblinda hlaut verðlaun sem besta þýdda spennusagan í Bretlandi árið 2015.