Má ekki bjóða þér að blaða í rafrænum bæklingi – en hér má finna yfirlit yfir unaðslega útgáfu Bjarts á þessu herrans ári, 2013. Skáldsögur, smásögur, ljóð, íslenskar og þýddar bækur, fyrir fólk á öllum aldri! Hér er líka adressan, ef þú vilt deila henni: http://issuu.com/bjarturbooks/docs/bjartur2013
Hún er komin í hús, ylvolg úr prentsmiðjunni, glæpasagan Hlustað eftir Jón Óttar Ólafsson! Spennusaga af algerlega nýju kaliberi, segjum við og skrifum. Bráðskemmtilegur krimmi, sem þegar hefur vakið athygli erlendra útgefenda. Þetta er fyrsta skáldsaga Jóns Óttars Ólafssonar, afbrotafræðings. Bókinni verður dreift í bókaverslanir strax í dag.
Í dag kemur út hjá Veröld glæpasagan Andköf eftir Ragnar Jónasson. Nokkrum dögum fyrir jól finnst ung kona látin undir klettum í Kálfshamarsvík, rétt norðan Skagastrandar, þar sem áður stóð þorp. Ari Þór Arason lögreglumaður fer á Þorláksmessu til að rannsaka málið og kemst að því að bæði móðir og barnung systir hinnar látnu hröpuðu
Nýjasta ljóðskáld Bjarts, Eva Rún Snorradóttir, tilkynnti í Fréttablaðinu á laugardag að hún hyggðist taka upp handboltaiðkun að nýju. Hún var í skemmtilegu viðtali við Friðriku Benónýsdóttur, sem má sjá í heild sinni hér . Heimsendir fylgir þér alla ævi er fyrsta ljóðabók Evu Rúnar Snorradóttur, sem þekkt er fyrir starf sitt með Framandverkaflokknum Kviss