Fréttir

Grípandi og átakanlegur verðlaunakrimmi

Fréttir

Grípandi og átakanlegur verðlaunakrimmi

Eva Björg Ægisdóttir hlaut spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir sögu sína Marrið í stiganum sem komin er út. Það eru Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson sem standa að verðlaunum í samvinnu við Veröld. Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni. Lögreglukonan Elma, sem

Meira →


Þú fyllist skelfingu. En þú veist ekki hvers vegna …

Fréttir

Þú fyllist skelfingu. En þú veist ekki hvers vegna …

Út er komin hjá Veröld skáldsagan Ég er að spá í að slútta þessu eftir kanadíska rithöfundinn Iain Reid. Jake og kærasta hans heimsækja foreldra hans sem búa á frekar afskekktum bóndabæ. Ýmislegt sérkennilegt mætir unnustunni í þessari ferð og sú mynd sem hún hafði af Jake rímar illa við það sem hún upplifir. Á heimleiðinni lenda þau

Meira →


Næsta neonbók er Hin órólegu

Næsta neonbók er Hin órólegu

Í byrjun apríl fá neonfélagar senda bókina Hin órólegu eftir Linn Ullmann. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda fyrir hönd Noregs árið 2016. Faðir og dóttir sitja með upptökutæki á milli sín. Þau ætluðu að vinna að bók um það að eldast, um ellina. En þegar vinnan fer loksins af stað hefur ellin náð á honum slíku taki að samtölin verða ómarkviss og fara út um víðan völl. Hin órólegu er óvenjuleg og leitandi saga sem leikur sér að hinum ýmsu bókmenntaformum – um barn sem getur ekki beðið eftir því að verða fullorðið, foreldra sem helst vilja vera börn,...

Meira →


Rof Ragnars loksins í kilju!

Fréttir

Rof Ragnars loksins í kilju!

Út er komin hjá Veröld í kiljuútgáfu spennusagan Rof eftir Ragnar Jónasson. Árið 1955 flytja tvenn ung hjón til Héðinsfjarðar sem farinn er í eyði. Dvölin fær snöggan endi þegar önnur kvennanna deyr með dularfullum hætti. Hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum.  Bækur Ragnars hafa komið

Meira →


Fimm stjörnu heimskautakrimmi

Fréttir

Fimm stjörnu heimskautakrimmi

Út er komin hjá Veröld spennusagan Flúraða konan eftir Mads Peder Nordbo. Þegar lík af fornum víkingi finnst í ísnum í Grænlandsjökli er útlit fyrir að hið litla samfélag í Nuuk muni verða miðpunktur heimssögulegra tíðinda. Danski blaðamaðurinn Matthew Cave er sendur á vettvang en málið tekur óvænta stefnu þegar líkamsleifar víkingsins hverfa og lögreglumaður sem vaktaði þær

Meira →