Út er komin, hjá bókaforlaginu Bjarti, Veðurfræði Eyfellings eftir Þórð Tómasson frá Vallnatúni – sem margir þekkja nú sem Þórð í Skógum.
Höfundur tileinkar Veðurfræði Eyfellings – greinargerð um veður og veðurmál undir Eyjafjöllum foreldrum sínum og gamla fólkinu í Vallnatúni, þeim sem kenndu honum að tala íslenskt mál og gáfu honum orðaforða.
Þessi merkilegi vitnisburður um íslenska tungu kom út árið 1979, og sendi Nóbelsskáldið Halldór Laxness höfundi þakkarbréf og áletraða bók í hrifningu sinni. Bókin hefur lengi verið ófáanleg en kemur nú út að nýju, með viðbótum, nýrri orðaskrá og eftirmála höfundar.
Þórður Tómasson hefur um langt skeið safnað minjum um horfna menningu og starfshætti. Auk þess að skrifa fjölda greina og bóka hefur hann byggt upp byggðasafnið í Skógum undir Eyjafjöllum.
Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson.
Bókin er 198 blaðsíður og fæst í tveimur litum: Blá og drapplituð.