Texti dagsins

Fréttir

Texti dagsins

Hann kallar þetta ekki endilega ljóð. Og ekki prósa. Frekar texta.

Kött Grá Pjé gefur út hjá Bjarti bókina Perurnar í íbúðinni minni. Bókin er á leið úr prentun. En hér er titiltextinn.

PERURNAR Í ÍBÚÐINNI MINNI
Ein af annarri dóu perurnar í íbúðinni. Það gerðist ekki sisvona. Ég
tók ákvörðunina um vor. Skömmu fyrir jól logaði enn á leslampanum
mínum og á ljósinu yfir helluborðinu á eldavélinni. Leslampinn fór
á milli jóla og nýárs. Peran yfir helluborðinu dó um miðjan janúar.
Um hríð var algjört myrkur. Köttunum virtist vera nákvæmlega sama.
Áfram barst daufur bjarmi af götuljósunum inn um stofugluggann. Þó
ekki svo að ég sæi til nokkurs gagns. Mikið var það yndislegt. Fljótlega
í kjölfar þess tók aftur að vora. Dag einn vaknaði ég í björtu. Þá stóð
ég upp og dró fyrir.


Eldri fréttir Nýrri fréttir