Skilafresturinn í Svartfuglinum framlengdur!

Fréttir

Skilafresturinn í Svartfuglinum framlengdur!

Skilafrestur í Svartfuglinum hefur verið framlengdur til 2. janúar. Svartfuglinn, hin nýju glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson hafa stofnað til í samvinnu við útgefanda sinn, Veröld, verða afhent í fyrsta sinn árið 2018 að undangenginni samkeppni.

Þeim sem hlýtur glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn býðst samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015. 
Verðlaunin eru veitt fyrir handrit að áður óbirtri glæpasögu og er við það miðað að sagan komi út hjá Veröld í upphafi Viku bókarinnar í apríl ár hvert. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig fær sá sem ber sigur úr býtum sérstakan verðlaunagrip, auk samningsins við David H. Headley. Yrsa og Ragnar skipa dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar. 

Handritum skal skilað í þríriti til Veraldar að Víðimel 38, 107 Reykjavík, eigi síðar en 2 . janúar næstkomandi. Þau eiga að vera merkt dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Höfundurinn má ekki hafa gefið út glæpasögu áður. Ef ekkert handritanna uppfyllir kröfur dómnefndar verða verðlaunin ekki veitt það árið. 

Yrsa og Ragnar segjast með þessum nýju verðlaunum vilja hvetja höfunda til að spreyta sig á þessu bókmenntaformi, greiða þeim leið til útgáfu og stuðla að því að fleiri skrifi bækur á íslenskri tungu. Jafnframt vonast þau til að verðlaunin hjálpi nýjum höfundum að komast að hjá erlendum bókaforlögum.


Eldri fréttir Nýrri fréttir