Saga um tilfinningar fyrir börn

Saga um tilfinningar fyrir börn
Út er komin hjá Veröld bókin Drekinn innra með mér eftir Lailu M. Arnþórsdóttur og Svöfu B. Einarsdóttur.

Lítil súlka kemst að því einn daginn að innra með henni býr dreki sem er besta skinn Hann kennir henni að þekkja tilfinningar sínar og hvernig hún getur brugðist við þeim. Öll búum við yfir allskonar tilfinningum – til dæmis gleði, reiði, spennu og og depurð – og allar þessar tilfinningar eiga rétt á sér. Galdurinn er að læra að þekkja þær og hvernig við getum brugðist við þeim.

Fjölmörg börn kannast við þessa fallegu sögu um drekann innra með okkur sem nú er komin út á bók. Samnefnd sýning með tónlist eftir Elínu Gunnlaugsdóttur var sett upp í Eldborgarsal Hörpu við miklar vinsældir barna á leikskólaaldri og í fyrstu tveimur bekkjum grunnskólans. 


Eldri fréttir Nýrri fréttir