Ragnheiður hlaut Tómasarverðlaunin

Ragnheiður hlaut Tómasarverðlaunin

Ragnheiður Lárusdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2020 fyrir handrit sitt að ljóðabókinni 1900 og eitthvað. Þetta er fyrsta bók höfundar og kemur hún út í dag hjá bókaforlaginu Bjarti. Verðlaunin nema einni milljón króna. Í umsögn dómnefndar um verkið segir meðal annars: „1900 og eitthvað er hófstillt verk um stórfengleika hins smáa og áhrifamátt hversdagsleikans.“ Við minnum á að það er ekkert sendingargjald innanlands ef þú slærð inn afsláttarkóðann FRÍ þegar þú lýkur kaupunum. 

Í dómnefnd voru þau Sif Sigmarsdóttir, sem var formaður, Börkur Gunnarsson og Eyþór Árnason. Í umsögn nefndarinnar um verðlaunahandritið segir:

„1900 og eitthvað eftir Ragnheiði Lárusdóttur er heillandi uppvaxtarsaga prestsdóttur að vestan, vegferð hennar um torfarnar heiðar jafnt sem lífsins rangala.

Ljóðmælandi dregur upp tærar hversdagsmyndir sem í fyrstu virðast léttvægar; hálfdauðar flugur í gluggakistu kirkjunnar; póstskorturinn sem skellur á þegar ófært er yfir heiðina. En þegar líða tekur á verkið verður lesanda ljóst að það er einmitt í þessum léttvægu stundum sem lífið liggur og örlögin ráðast. Það fellur að og fjarar út, bönd verða til og þau slitna, draumar rætast og vonir bresta, allt yfir kaffibolla, nýveiddum silungi og Andrésblöðum.

1900 og eitthvað er heildstætt verk, falleg saga af uppvexti stúlku í heimi sem er ekki alltaf hennar. Einfaldleikinn er tær og ómengaður. Dregnar eru upp skýrar myndir frá síðustu öld þar sem prestar ferðast á milli fjarða á skíðum til að messa, útvarpið er eina tengingin við umheiminn og fjársjóðurinn sem skipin færa að landi eru eplakassar. Þrátt fyrir erfiðið er dísæt hamingja víða, púðursykur og pönnsur. 

1900 og eitthvað er hófstillt verk um stórfengleika hins smáa og áhrifamátt hversdagsleikans.“


Eldri fréttir Nýrri fréttir