Kætir og grætir, magnþrungið og ægifagurt!

Fréttir

Kætir og grætir, magnþrungið og ægifagurt!

Friðrika Benónýsdóttir skrifar fallega um Fyrir Lísu í Fréttablaðinu í morgun. „Stíll Steinunnar er sem fyrr fágaður og agaður og setningarnar bráðna í munni, kæta og græta,“ skrifar Friðrika. Hún segir að húmorinn sé fyrirferðarmeiri heldur en í síðustu bók Steinunnar Jójó: „og heimsóknin til sálgreinandans fer hiklaust á blað með kómískustu atriðum á hennar ferli.“ Og er þó af nógu að taka, myndu sumir bæta við! „Lýsingar á samskiptum þeirra hjóna, Martins og Petru, eru líka magnþrungnar og ægifagrar,“ segir Friðrika – en að öllu þessu sögðu finnst henni Fyrir Lísu ekki standa jafnfætis Jójó, sem hún kallar snilldarverk og hvetur fólk til að lesa. Hér fyrir neðan má sjá dóminn í heild sinni.

Nýrri fréttir