Innsævi Ferdinands

Fréttir

Innsævi Ferdinands

Út er komin hjá Veröld ljóðabókin Innsævi eftir Ferdinand Jónsson. Innsævi inniheldur 37 öguð og fáguð ljóð en Ferdinand hefur fengist við ljóðagerð í rúm tuttugu ár. Ljóðin bera þess merki að höfundurinn yrkir úr fjarlægð en hann hefur um langt árabil starfað sem geðlæknir í miðborg Lundúna þar sem hann vinnur með heimilislausum í einu fátækasta hverfi borgarinnar.

 

flæðir

 

um brjóstið

 

birta

 

hvít

 

undan hverfandi móðu

 

morguns

 

yfir fallnar vonir

 

vetrar

 

vorskip

 

á innsævi

 

augna

 

þinna

 

 

Innsævi er 50 blaðsíður að lengd. Ólafur Kristjánsson sá um kápuhönnun. Bókin er prentuð í Leturprenti.


Eldri fréttir Nýrri fréttir