„Hröð og mögnuð spennusaga“

Fréttir

„Hröð og mögnuð spennusaga“

Út er komin hjá Veröld spennutryllirinn Þrjár mínútur eftir Roslund & Hellström. Piet Hoffmann er á flótta undan sænskum yfirvöldum og gerist flugumaður bandarískra stjórnvalda í kólumbísku kókaínmafíunni. Honum tekst að komast til metorða í hrottalegum heimi glæpamanna sem svífast einskis. Þegar háttsettur bandarískur stjórnmálamaður er tekinn í gíslingu lendir Hoffmann milli steins og sleggju – báðir aðilar vilja hann feigan. Sænski lögreglumaðurinn Ewert Grens er sendur til Kólumbíu til að reyna að ná sambandi við Hoffmann sem hefur ákveðið að taka málin í sínar hendur.

Háspennutryllir úr smiðju þeirra Roslund & Hellströms sem grípur lesandann heljartökum og sleppir honum ekki fyrr en á síðustu síðu.

„Hröð og mögnuð spennusaga, eins og að horfa á æsispennandi kvikmynd.“ - Dagens Nyheter

„Í senn sérlega haganlega samansett glæpasaga og pólitískur spennutryllir.“ – Borås Tidning

„Spennandi saga um ofsóttasta mann í heimi í kókaínfrumskógum Kólumbíu.“ – Sveriges Radio, P4

„Skyldulesning sumarsins, eða kannski bara einfaldlega skyldulesning fyrir alla.“ – Skånska Dagbladet


Eldri fréttir Nýrri fréttir