Glæpakvöld hins íslenska glæpafélags

Fréttir

Glæpakvöld hins íslenska glæpafélags

Hið íslenska glæpafélag heldur árlegt glæpakvöld á Bast, Hverfisgötu 20 (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu) fimmtudaginn 21. nóvember.

Húsið opnar klukkan 19.30 með glæpadjassi Edda Lár og félaga, viskíkynningu og tilboðum á barnum en lesturinn hefst um klukkan 20.00.

Eftirtaldir höfundar lesa úr nefndum verkum sínum:
Hermann Jóhannesson, Olnbogavík,

Jón Óttar Ólafsson, Hlustað

Óttar M. Norðfjörð, Blóð hraustra manna

Ragnar Jónasson, Andköf

Sólveig Pálsdóttir, Hinir réttlátu,

Sverrir Berg, Drekinn.

Að auki koma fram þrír erlendir höfundar og lesa: Ann Cleeves og Quentin Bates frá Englandi og Jorn Lier Horst frá Noregi.

Vakin er sérstök athygli á því, hér á Bjartsvefnum, að þetta verður í fyrsta sinn sem hinn nýi glæpahöfundur Jón Óttar Ólafsson les upp! 


Eldri fréttir Nýrri fréttir