GAMLAR SYNDIR OG NÝJAR LYGAR

Fréttir

GAMLAR SYNDIR OG NÝJAR LYGAR

Út er komin hjá Veröld glæpasagan Lygi eftir Yrsu Sigurðardóttur. Fjögurra manna hópur fer að sinna viðhaldi í Þrídrangavita úti fyrir suðurströndinni – þaðan sem enginn kemst lifandi nema í þyrlu. Fjölskylda snýr heim eftir íbúðaskipti en hvorki finnst tangur né tetur af gestum þeirra. Og ung lögreglukona rekst á áratuga gamla skýrslu um eiginmann sinn sem umturnar lífi hennar. Þessir ólíku þræðir fléttast saman í magnaða sögu þar sem ekkert er sem sýnist.

 

Gamlar syndir, nýjar lygar, óhugnanlegar tilviljanir – Yrsa Sigurðardóttir bregst ekki í nýrri og spennandi glæpasögu!

 „Yrsa hefur komið sér fyrir á eða við hátind norrænna glæpasagna.“ The Times

 „Stenst samanburð við það besta sem gerist í heimi glæpasagna samtímans.“ Times Literary Supplement

 „Jafnoki höfunda á borð við Stephen King þegar kemur að því að skapa óhugnað og ótta.“ Independent

 Lygi er 323 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. 

Bókin er prentuð í Odda.


Eldri fréttir Nýrri fréttir