Út er komin hjá Veröld skáldsagan Sakramentið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Nemandi í Landakotsskóla verður vitni að því þegar séra Ágúst Frans skólastjóri hrapar niður úr turninum á Kristskirkju. Tveimur áratugum síðar vill drengurinn hitta nunnuna sem í aðdraganda þessa atburðar var fengin til að rannsaka framkomu skólastjórans við nemendur. Kynni hennar af Íslandi og Íslendingum umturnuðu lífi hennar og hún er enn með hugann við snjóinn í kringum svarta kirkjuna og skólahúsið hjá kirkjunni og líkið í snjónum.
Sakramentið er stórbrotin skáldsaga um sekt og sakleysi, ást og eftirsjá, yfirhylmingu og leynd, vald – og okkar minnstu bræður.
Hér sýnir Ólafur Jóhann Ólafsson allar sínar bestu hliðar: sagan heldur lesandanum föngnum, persónurnar eru ljóslifandi og efnið áhrifamikið. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar, bæði heima og erlendis, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin og O. Henry verðlaunin í Bandaríkjunum.
Sakramentið er 346 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu.