Allt fer á hvolf

Fréttir

Allt fer á hvolf

Út er komin hjá Veröld skáldsagan Hendingskast eftir Sigurjón Bergþór Daðason

Ungur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersónunnar þar sem allt fer á hvolf.

Hendingskast er fyrsta skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar. Undir lygnu yfirborði kraumar ólga og togstreita – og ísmeygileg kímni.

Hendingskast er 191 blaðsíða að lengd, kilja. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.


Eldri fréttir Nýrri fréttir