Katrín Júlíusdóttir hlaut Svartfuglinn 2020

Katrín Júlíusdóttir hlaut Svartfuglinn 2020

Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hlaut spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn árið 2020 fyrir glæpasöguna Sykur. Það var Eliza Reid, forsetafrú og bókmenntafrömuður, sem afhenti verðlaunin og fyrsta eintak bókarinnar. Í áliti dómnefndar um bókina segir m.a.: „Í sögunni tekst höfundi í liprum texta að draga upp mynd af sérlega trúverðugum persónum sem standa andspænis skelfilegum glæpum. Fléttan er ákaflega vel unnin og samhliða henni er sögð átakanleg fjölskyldusaga. Persóna ódæðismannsins er afar haganlega samansett og sumstaðar má sjá að höfundurinn hefur góða innsýn í baksvið íslenskrar stjórnsýslu. Bókin er grípandi strax frá fyrstu síðu og allt til óvæntra endalokanna sem setja söguna í nýtt samhengi.“ 

Samkeppnin um Svartfuglinn er ætluð höfundum sem hafa ekki áður sent frá sér glæpasögu. Höfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson stofnuðu til verðlaunanna í samvinnu við útgefanda sinn, Veröld, og eru þau veitt í þriðja sinn í ár. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna. Einnig býðst þeim sem sigur ber úr býtum samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015. Eva Björg Ægisdóttir hlaut fyrstur höfunda Svartfuglinn 2018 fyrir spennusögu sína Marrið í stiganum sem fékk mjög góðar móttökur og hefur útgáfurétturinn á bókinni verið seldur til margra landa. Bókin er komin út á Bretlandi og hefur hlotið sérlega góða dóma, var nýlega tilnefnd sem besta frumraunin í Bretlandi 2020.

Yrsa og Ragnar skipuðu dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.


Eldri fréttir Nýrri fréttir