Álfar og bannhelgi

Álfar og bannhelgi

Bjartur  hefur gefið út bókina Krossgötur – álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og Svölu Ragnarsdóttur. Krossgötum er þannig lýst á kápubaki:

Íslensk þjóðtrú geymir fjölmargar frásagnir af ákveðnum siðum sem menn skulu viðhafa í umgengni sinni við álfa og huldufólk. Þessir siðir hafa haldist merkilega óbreyttir í gegnum aldirnar – að minnsta kosti sá hluti þeirra sem snýr að skilyrðislausri virðingu fyrir bústöðum álfa og huldufólks. Nú sem fyrr hafa slík bannhelg svæði áhrif á framkvæmdir manna, allt frá vegalagningu til byggingu sólpalla.

Í þessari bók eru fimmtíu og fjórir álfasteinar, huldufólksklettar, dvergasteinar og aðrir bannhelgir staðir um allt land, teknir til skoðunar í máli og myndum, um leið og hinn forni átrúnaður á nábýli mannfólks og yfirnáttúrulegra vætta er settur í samhengi við sögu, listir og fræði. Krossgöturer einstök lesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á einni þekktustu þjóðtrú Íslendinga og þeim sýnilegu áhrifum sem hún hefur í borg og sveit. 

Bryndís Björgvinsdóttir er þjóðfræðingur og rithöfundur. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2015.

Svala Ragnarsdóttir er ljósmyndari og hefur unnið til verðlauna fyrir ljósmyndir sínar af byggingaframkvæmdum í íslenskri náttúru.


Eldri fréttir Nýrri fréttir