Hljóðin í nóttinni
Björg Guðrún Gísladóttir

Hljóðin í nóttinni

Fullt verð 1.999 kr 0 kr

„Eina nóttina vaknaði ég og kallaði á mömmu en það kom ekkert svar. Ég fór fram úr og inn í eldhús, þar var enginn. Samt var eins og einhver hefði verið þarna nýlega; tóbaksfnykur í loftinu, öskubakkinn fullur af stubbum sem sumir voru með varalit, flaska á borðinu með einhverjum vökva.“

Átakanlegar örlagasögur sem mótuðu líf lítillar stúlku og foreldra hennar á sjöunda áratug síðustu aldar. Hörð lífsbarátta í eymd og niðurlægingu í Höfðaborginni í Reykjavík. Og sársaukafullt uppgjör við margt af því ljótasta sem lífið hefur upp á að bjóða.

Hljóðin í nóttinni er í senn saga um hyldjúpa sorg og óbilandi lífskraft. Saga sterkrar konu sem brýtur af sér hlekki fortíðarinnar og horfist í augu við það fegursta – en líka það hryllilegasta – í lífinu.

Hljóðin í nóttinni er 252 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði kápuna. 

„Björg Guðrún er afskaplega sterk og hugrökk manneskja að segja okkur þessa áhrifamikllu sögu sem lætur engan ósnortinn.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðinu

„Hljóðin í nóttinni er eftirminnileg og vel skrifuð sjálfsævisaga, full af grimmd og andstyggð sem sagt er frá af heiðarleika og einlægni. Hún er hetjusaga um vítahring angistar og örvæntingar og grýtta leið til sáttar og bata. Um leið er varpað ljósi á skömm í sögu þjóðarinnar sem hefur verið falin alltof lengi." Steinunn Inga Óttarsdóttir, Kvennablaðinu

„Björg er sönn hetja i hugum okkar allra.“ Mikael Torfason, Fréttablaðinu

„Ég las bókina í einum rykk og gat ekki hætt þó ég reyndi. Stundum var ég með kökk í hálsinum en upp úr stendur að Björg er sigurvegari.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️  Anna Kristín Halldórsdóttir, Pjatt.is

„Björg er svo vel skrifandi  ... Dáist að henni ... Gríðarlega sterk bók .. snertir mann djúpt.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni.

„Hún á skilið allt það lof sem hún er að fá.“ Egill Helgason, Kiljunni

„Firnavel skrifuð.“ Þorgeir Tryggavson, Kiljunni

„Bókin er gersemi – gat ekki lagt hana frá mér.“ Guðrún Ögmundsdóttir

 


Fleiri bækur