Uggur
Úlfar Þormóðsson

Uggur

Fullt verð 1.999 kr 0 kr
Margreyndur rithöfundur fær óvænta höfnun sem leiðir til þess að hann missir fótanna. Lesandinn slæst í för með Úlfari Þormóðssyni þar sem hann berst við þetta mótlæti, rifjar upp bæði ljúfar og sárar minningar, auk þess sem honum er fylgt eftir í hringiðu samtímans. Uggur er einlæg og ágeng bók þar sem Úlfar fléttar saman nútíð og fortíð af mikilli fimi og kaldri kímni. Síðustu bækur Úlfars Þormóðssonar, Farandskuggar og Boxarinn, fjölluðu um móður hans og föður. Þær vöktu mikla athygli og fengu einróma lof gagnrýnenda. Nú beinir hann kastljósinu að sjálfum sér. Úlfar hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins árið 2012 fyrir ritstörf sín.

Fleiri bækur