![Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað](http://bjartur-verold.is/cdn/shop/products/Trollastrakurinn-frontur_1c973983-75f7-41b1-88b4-35713f479fd1_{width}x.jpg?v=1530045413)
Sigríður Arnardóttir - Sirrý
Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað
Fullt verð
2.499 kr
Tröllastrákurinn Vaki leikur sér í sveitinni allan liðlangan daginn en þegar nóttin læðist yfir sveitina fer allt að titra og skjálfa.
Foreldrar Vaka hrjóta svo hátt og ógurlega í hellinum að hvorki Vaki né dýrin í sveitinni geta sofið. Ekki fyrr en hann finnur snilldarlausn á þessum vanda!
Bráðskemmtileg saga eftir Sigríði Arnardóttur – Sirrý – með gullfallegum og líflegum myndum Freydísar Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur með lestri Kristjáns Franklín Magnúss leikara á sögunni.
Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað er 30 blaðsíða að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Odda.