Guðni – Léttur í lund
Guðni Ágústsson

Guðni – Léttur í lund

Fullt verð 2.490 kr 0 kr

Guðni Ágústsson er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi. Hann er annálaður sagnamaður og njóta fáir viðlíka vinsælda sem tækifærisræðumenn og hann, auk þess sem miklar sögur hafa lengi gengið um hann sjálfan.

Í þessari bráðskemmtilegu bók segir Guðni með sínum kjarnyrta hætti sögur af forvitnilegu fólki sem hann hefur mætt á lífsleiðinni – og sjálfum sér.
 
Hér stíga fram á sviðið óþekktir bændur úr Flóanum jafnt sem þjóðkunnir stjórnmálamenn af öllum stærðum og gerðum. Í bókinni eru sögur af kynlegum kvistum og vammlausum embættismönnum, skagfirskum indíána, mögnuðum draugagangi, flótta út um þakglugga, manndrápsferð til Kína, afdrifaríku
fallhlífarstökki og eftirminnilegar vísur – svo eitthvað sé nefnt. Þá segja ýmsir þjóðþekktir menn litríkar sögur af Guðna.
 
Guðni – Léttur í lund er sannkallaður lífsins elixír sem bætir, hressir og kætir!

Fleiri bækur