 
                
        
          Liza Klaussmann
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Tígrisdýr í rauðu veðri
            Fullt verð
            
              990 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Frænkurnar Nick og Helena hafa eytt heitum sumrum æsku sinnar og uppvaxtar í Tiger House, gamalli fjölskylduvillu á eynni Martha’s Vineyard. Í lok síðari heimsstyrjaldarinnar eru þær gjafvaxta ungar konur og framtíðin blasir við þeim.
Hvorug þeirra öðlast þó það líf sem þær höfðu gert sér vonir um og eftir því sem árin líða tekur hin árlega sumardvöl í Tiger House á sig flóknari mynd.
Í byrjun sjöunda áratugarins fletta börn þeirra ofan af óhugnanlegum atburði sem læðir skugga inn í lífið á eynni og skekur kjarnann í samheldni fjölskyldunnar.
Höfundur er Liza Klaussmann. Þýðandi er Ingunn Ásdísardóttir.
 
                   
               
               
              