Syng, mín sál
Árni Heimir Ingólfsson

Syng, mín sál

Fullt verð 5.500 kr 0 kr

Íslensk handrit frá fyrri öldum hafa að geyma hundruð sönglaga en fæst þeirra hafa verið aðgengileg flytjendum og áhugafólki um tónlist. Nú hefur Árni Heimir Ingólfs­ son safnað saman 40 lögum úr þessum handritum. Þau eru af marg­víslegum toga en eiga það sameiginlegt að hafa fyrir óralöngu lífgað upp á til­ veruna í hrjóstrugu landi á hjara veraldar. Elstu lögin eru frá fimmtándu öld en þau yngstu frá þeirri átjándu og gefa þau góða mynd af tónlistarlífi á Íslandi í ríflega þrjár aldir. Í bókinni er einnig að finna greinargóðar skýringar á uppruna laganna og sögulegu samhengi þeirra.

Árni Heimir Ingólfsson er mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistarsögu. Hann hefur í þrígang verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bækur sínar, nú síðast Tónar útlaganna. Syng, mín sál er ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um íslenska tónlistarmenningu.  


Fleiri bækur