Svartakóf
Ragnar Jónasson

Svartakóf

Fullt verð 7,000 kr 0 kr

Lögreglumaðurinn Helgi Reykdal er á leið á Litla-Hraun ásamt tveimur kollegum. Framundan er mesta raun sem hann hefur ratað í. Um leið syrgir hann dauða Anítu, unnustu sinnar, sem Bergþóra, fyrrum sambýliskona hans, varð völd að. Og samhliða reynir hann að grafast fyrir um hvað varð um forvera hans í starfi – Huldu Hermannsdóttur.

Svartakóf er margbrotin glæpasaga eftir ráðgátumeistarann Ragnar Jónasson. Bækur Ragnars koma út um víða veröld, hafa selst í milljónum eintaka og hlotið margvísleg verðlaun.

Ragnar fer hér á kostum í frábærlega fléttaðri glæpasögu.

„Svartakóf ríghélt mér allt til enda.“ Atnhony Horowitz

„Svartakóf sleppir tökunum aldrei af lesandanum.“ Le journal de centre (lejdc.fr)

„Sagan rennur vel og atburðarásin er hröð. Það er mjög skemmtilegt hvernig Ragnar fléttar nokkrum málum saman og hér eru í raun þrjár sögur í gangi í einu. ... Ragnar er snilldarglæpasagnahöfundur og þessi nýja bók er enginn eftirbátur hinna fyrri. Bækur hans eru ævinlega drifnar áfram af persónum, samskiptum þeirra og flókinni gátu.“ Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna

„Glæpasagan Svartakóf eftir Ragnar Jónasson er spennandi og vel uppbyggð glæpasaga á allan hátt, stingandi og sveipuð myrkri. ... sennilega besta bók Ragnars.“ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu ★★★★½


Fleiri bækur