Vorblót
Katrín Jakobsdóttir

Vorblót

Fullt verð 7,000 kr 0 kr

Vigdís Magnúsdóttir hefur gefist upp á doktorsnámi í heimspeki og ákveður að hasla sér völl í hugleiðslu og öðrum andlegum málefnum. Hún auglýsir helgarnámskeið í ríkmannlegri villu fyrir utan Hveragerði þar sem kynna á „fjölbreyttar leiðir til að öðlast innri ró og næra andann“. Allt gengur að óskum – þangað til framið er morð.

Vorblót er fyrsta glæpasagan sem Katrín Jakobsdóttir sendir frá sér ein en hún hefur rannsakað glæpasögur um margra ára skeið. Áður hefur hún skrifað metsölubækurnar Reykjavík og Franski spítalinn með Ragnari Jónassyni. Báðar bækurnar hafa komið út víða um um lönd og fengið frábærar viðtökur.

Vorblót er spennandi morðsaga en um leið full af hlýju og kímnni – og breyskum persónum.

„Allir að lesa Vorblót!“ Gísli Marteinn Baldursson

„Vorblót er skemmtileg og vel fléttuð bók þar sem komið er inn á andlega leit nútímafólks, streitu og leitina að lífsfyllingu. ... Persónugalleríið hjá Katrínu er ansi skemmtilegt og skrautlegt. ... Katrín hefur lipran stíl og skemmtileg kímnin er heillandi. Atburðarásin er drifin áfram af gátunni og það verður að segjast að hún er vel unnin og endirinn kom að vissu leyti á óvart. Katrín kann vel þá list að dreifa vísbendingum og segja aldrei of mikið í einu. Vorblót er fín glæpasaga.“ Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna




Fleiri bækur