Skuggar af Kili
Birgir Tjörvi Pétursson

Skuggar af Kili

Fullt verð 7,000 kr 0 kr

„Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu.“

Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessarar sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.

Í þessari áhugaverðu og vel fléttuðu sögu tekst höfundi að spegla aldagamla örlagasögu og átakanlegan tilvistarvanda nútímamanns. Jafnhliða er lesanda boðið í ferðalag þar sem kvikna gömul örlög, mannlegir brestir, þvermóðska, bölbænir og áhrínsorð.

Birgir Tjörvi Pétursson starfar sem lögmaður í Reykjavík. Skuggar af Kili er hans fyrsta skáldsaga.


Fleiri bækur