Obbuló í Kósímó – Gjafirnar
Kristín Helga Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson

Obbuló í Kósímó – Gjafirnar

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Oddný Lóa Þorvarðardóttir býr í Kjóamóa þrjúhundruð og sjö. Hvaða krakki getur sagt það? Enginn. Obbuló á heima í Kósímó. Þar búa líka mamma, pabbi og Bessi besti bróðir. Hann á þrjá pabba, sem er mjög ósanngjarnt. Obbuló á bara einn. Bessi er stóri bróðir. Samt er Obbuló miklu stærri. Hún er risabarn og stærri en allir, sem er auðvitað vitleysa. En þetta segir hún nú samt.

Hvað ÁT afi? Hver tók allt sem TÝNDIST? Hvað gerir pabbi til að geta HUGSAÐ? Má POTA í pakka og KLÍPA þá? Hvað var í RISARISAstóra pakkanum? Hvað vantar HEIMINN?

Þessum mikilvægu jólaspurningum er öllum svarað í bókinni.

Dinna og Dóri ( Kristín Helga Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson) búa til bækurnar um Obbuló. Þau eru verðlaunagrísir, hafa skrifað og teiknað marga kílómetra af allsskonar sögum, meðal annars bjuggu þau til sjálfa Fíusól.


Fleiri bækur