Myrkravald
Eva Björg Ægisdóttir

Myrkravald

Fullt verð 4.800 kr 0 kr


„Við þurfum að ræða það sem gerðist í Lyon. Ég verð í sendiráðinu í kvöld.“ 

Vera stefnir hraðbyri í að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur en póstur frá franskri blaðakonu neyðir hana til að horfast í augu við örlagaríka atburði sem áttu sér stað fyrir nálega tveimur áratugum. Veröld hennar fer á hvolf þegar blaðakonan hnígur niður í móttöku í sendiherrabústaðnum með hörmulegum afleiðingum. Skömmu síðar birtist óvænt franskur rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík ...

Eva Björg Ægisdóttir og Jérôme Loubry eru bæði margverðlaunuð fyrir glæpasögur sínar. Þau leggja hér saman krafta sína að undirlagi glæpasagnahátíðarinnar Quais du polar í Lyon en hana sækja yfir 100.000 manns ár hvert. Bókin kemur út samtímis á Íslandi og í Frakklandi.

„Ef þú hefur aldrei lesið bók eftir Evu Björgu er kominn tími til að bæta úr því þegar í stað.“ The Times

„Jérôme Loubry skrifar hér átakanlega og æsispennandi glæpasögu þar sem draugar fortíðarinnar birtast á hverri blaðsíðu.“ Le Parisien (um Le douzième chapitre)


Fleiri bækur