Ljóðasafn: Ólafur Jóhann Sigurðsson
Ólafur Jóhann Sigurðsson

Ljóðasafn: Ólafur Jóhann Sigurðsson

Fullt verð 5.000 kr 0 kr

Ólafur Jóhann Sigurðsson (1918-1988) var eitt helsta skáld þjóðarinnar á 20. öld. Hann hlaut fyrstur Íslendinga bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976 en eftir hann liggja einnig stórvirki á sviði skáldsagnagerðar og margar smásögur hans teljast sígildar. 

Hér hefur verið safnað saman öllum ljóðabókum Ólafs Jóhanns: Nokkrar vísur um veðrið og fleira, Að laufferjumog Að brunnum, sem hann hlaut Norðurlandaráðsverðlaunin fyrir, Virki og vötn og Að lokum

Vésteinn Ólason prófessor emeritus skrifar ítarlegan formála að bókinni.

Ljóðasafn Ólafs Jóhanns Sigurðssonar er ómissandi öllum fleim er unna sígildum íslenskum skáldskap.

„Ólafur Jóhann Sigurðsson er skáld af klassískum eða nýklassískum skóla og á heima í mikilli fylkingu evrópskra skálda, þeirra sem koma á eftir snillingum eins og Goethe eða Hölderlin og fylgja að nokkru marki í fótspor þeirra, sneiða hjá hömlulausri rómantískri sjálfstjáningu en laða fram djúpa samkennd með sköpunarverkinu.“ – Úr formála Vésteins Ólasonar

„Að lesa ljóð Ólafs Jóhanns er ekki ósvipað því að horfa ofan í silfurtæran hyl.“ – Kristján Árnason skáld


Fleiri bækur