Ástin Texas - kilja
Guðrún Eva Mínervudóttir

Ástin Texas - kilja

Fullt verð 2.300 kr Tilboðsverð 3.400 kr

Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut Fjöruverðlaunin 2019 fyrir Ástin, Texas en bókin fékk einróma lof þegar hún kom út haustið 2018. 

,,Ef líf mitt væri hugljúf bíómynd hefði ég sest í lótusstellingu fyrir framan grammófóninn við hvert tækifæri og svifið inn í heim klassískrar tónlistar og háleitra tilfinninga. Inn um dyrnar eitt kvöldið hefði gengið fínlegur og listrænn ungur maður, alger andstæða hnakka tískunnar sem reið röftum á þessum tíma, og fallið í stafi yfir afgreiðslustúlkunni sem var svona mikill listunnandi, Við hefðum orðið ástfangin og skapað okkur innihaldsríkt líf saman. Í staðinn lagðist ég undir sjoppueigandann."

Í þessum tengdu sögum Guðrúnar Evu eru samskipti fólks á öllum aldri í forgrunni; mæðgna, feðgina, elskenda, vinnufélaga, hyskis og góðborgara. Persónugalleríið er fjölbreytt og litríkt; Sálfræðineminn Hildugunnur, Agnar sjoppueigandi, Jósteinn múrari, trúboðarnir Austin og David frá Texas, Jóhanna sem dregst háskalega að Kára, móðurbróður bestu vinkonu sinnar, elskendurnir Sóti og Magga sem verja tíma sínum á knæpunni Dallas...

Af einstöku næmi og stílgáfu nær Guðrún Eva hér fágætri dýpt í mannlýsingum og bæði persónur og andrúmsloft sagnanna lifa með lesanda lengi á eftir.


„Hún gerir þetta af sinni ótrúlegu næmni og er svo flink í persónusköpun. ... yndislegt að lesa hana.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni

„Einhver galdur ... ofboðslega flottar sögur.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni 

„Heillandi … efnismiklar [sögur], fullar af eftirminnilegum aðal- og aukapersónum og hver um sig sjálfstætt verk.“ **** Hildigunnur Þráinsdóttir, Morgunblaðinu
„Þetta er fá­dæma vel gert; mann­lýs­ing­ar eru trú­verðugar og vekja sam­kennd með per­són­um og sam­skipt­um þeirra er lýst af slíkri dýpt og næmi að þau láta les­and­ann vart ósnort­inn.“ - Úr umsögn dómnefndar um Fjöruverðlaunin

Fleiri bækur