Í skugga trjánna – kilja
Guðrún Eva Mínervudóttir

Í skugga trjánna – kilja

Fullt verð 4.000 kr 0 kr

Í skáldævisögunni Í skugga trjánna tekst Guðrún Eva Mínervudóttir á við veruleikann af einlægni og  árænðni, svo út verður áhrifamikil saga – full af húmor og hlýju og skáldlegri visku. Gagnrýnendur Morgunblaðsins völdu hana bestu skáldsögu ársins og hún hlaut einnig Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana.

„Örugglega ein af bestu bókum ársins.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJUNNI

„Enn einu sinni sannar Guðrún Eva sig sem einn besti stílisti Íslands og hér hleypir hún lesandanum að kviku. Í bókinni eru tregafullar en líka grátbroslegar lýsingar á aðstæðum, fólki og flækjum lífsins sem getur ekki látið neinn ósnortinn. Ein magnaðasta bók síðari ára.“ MENNINGARVEFUR RÚV

„Gífurlega elegant ... einstök næmni og skáldgáfa ... Frábært verk.“ INGIBJÖRG IÐA AUÐUNARDÓTTIR, KILJUNNI

„Þetta er svo vel skrifað og af mannskilningi og visku.“ EGILL HELGASON, KILJUNNI

„Áræðin og töfrum þrungin ...einlæg saga sem snertir við lesandanum og dregur ekkert undan í ljúfsárum lýsingum á veruleikanum eins og hann er – og eins og hann getur verið.“ ⭐️ ⭐️⭐️⭐️ 1/2 SNÆDÍS BJÖRNSDÓTTIR, MORGUNBLAÐINU

„Guðrún Eva er einn okkar allra besti rithöfundur og þetta óvænta, nýstárlega, óvænta, sorglega og yndislega mennska uppgjör er grípandi og áhugavert.“ STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR, LIFÐU NÚNA 


Fleiri bækur