Hinn æðsti leyndardómur
Robert Langdon er kominn til Prag til að vera viðstaddur byltingarkenndan fyrirlestur kærustu sinnar, Katherine Solomon, en hún er vísindamaður í fremstu röð. Katherine er í þann mund að senda frá sér bók sem hefur að geyma stórmerkilegar uppgötvanir hennar um eðli mannlegrar vitundar – uppgötvanir sem munu kollvarpa aldagamalli trú.
Katherine hverfur skyndilega þegar hrottalegt morð er framið og handrit hennar sömuleiðis. Og allt í einu er Langdon staddur í æsilegu kapphlaupi í dularheimum borgarinnar sem er gömul og viðsjárverð, þrungin þjóðsögum og leyndardómum.
Hinn æðsti leyndardómur er æsispennandi tryllir þar sem Robert Langdon þarf að taka á öllu sínu til að glata ekki hverju því sem er honum kært.
„Ógjörningur að leggja hana frá sér.“ THE NEW YORK TIMES
„Eftir meistara hinnar snjöllu spennusögu með óvæntum vendingum.“ LOS ANGELES TIMES
„Fyrir alla sem vilja meiri heilaleikfimi en spennusögur hafa almennt upp á að bjóða.“ SUNDAY TIMES