Franski spítalinn
Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

Franski spítalinn

Fullt verð 7.000 kr 0 kr

Febrúar 1989. Maður finnst látinn í Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði, draugalegu timburhúsi í niðurníðslu. Sunna, blaðamaður á Morgunblaðinu, fer austur til að grennslast fyrir um málið en bæjarbúar vilja lítið við hana tala og brátt fer hún að óttast um öryggi sitt og sinna nánustu.

Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson taka hér upp þráðinn frá Reykjavík sem varð mest selda bók ársins 2022. Hún hlaut mikið lof gagnrýnenda og var auk þess tilnefnd til Blóðdropans – Íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Reykjavík hefur komið út á fjölda tungumála og völdu New York Times og Kirkus Review hana sem eina af bestu glæpa sögum ársins 2023 í Bandaríkjunum.

 

⭐️⭐️⭐️⭐️ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„Grípandi sakamálasaga með óvæntum endi ... Þau Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir hafa yfirburðaþekkingu á glæpasögum ... Fléttan í þessari bók er vel unnin og allt gengur upp. Ragnar og Katrín leiða lesandann áfram af miklum hagleik og hann vill komast að lausn gátunnar.“ Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna 


Fleiri bækur