Bók vikunnar
Húni er nýkominn til borgarinnar þegar honum býðst starf á litlu skóverkstæði í Reykjavík meðfram námi í háskólanum. Gamli skósmiðurinn lést fyrir skömmu og Húni fær það hlutverk að afgreiða ósótta skó til viðskiptavina.
Húni kemur úr afskekktri sveit, fullur efasemda um nútímann og á því nokkuð erfitt með að fóta sig í bænum. Til að flækja tilfinningalíf hans enn frekar kynnist hann Júlíu sem honum þykir bæði óútreiknanleg og heillandi. Dag einn þegar hann situr á skóverkstæðinu fær hann hugmynd sem gæti bæði unnið hjarta Júlíu en um leið uppfyllt draum hans um að setja mark sitt á menningarlífið í borginni.
Snæbjörn Arngrímsson hefur áður vakið athygli fyrir óvenjulegar glæpasögur, en nú hefur hann skrifað annars konar bók – Bók vikunnar. Hér spretta fram sérstæðar persónur í kunnuglegu umhverfi – og seiðmögnuð stemmning ljær sögunni leyndardómsfullan blæ.
„Hugvitsamlega uppbyggð … skemmtileg, skrifuð af kímni og prakkaraskap.“ Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna
„Skemmtilega kerskin ... en fyrst og fremst hlý í lýsingum sínum á utangátta ungum manni sem kemur úr fyrndinni inn í samtímann og þarf að fóta sig upp á eigin spýtur.“ Fríða Björk Ingvarsdóttir
„Snilldarleg, heillandi ... þaulhugsuð: framúrskarandi.“ Conventionale (um Eitt satt orð)
„Sagan er heillandi og það eru sögupersónurnar sömuleiðis.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️1/2 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Heimildin (um Eitt satt orð)
⭐️⭐️⭐️⭐️ – Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu (um Eitt satt orð)
„Skemmtilestur.“ – Þorgeir Tryggvason, Kiljunni (um Eitt satt orð)