Ástin Texas
,,Ef líf mitt væri hugljúf bíómynd hefði ég sest í lótusstellingu fyrir framan grammófóninn við hvert tækifæri og svifið inn í heim klassískrar tónlistar og háleitra tilfinninga. Inn um dyrnar eitt kvöldið hefði gengið fínlegur og listrænn ungur maður, alger andstæða hnakka tískunnar sem reið röftum á þessum tíma, og fallið í stafi yfir afgreiðslustúlkunni sem var svona mikill listunnandi, Við hefðum orðið ástfangin og skapað okkur innihaldsríkt líf saman. Í staðinn lagðist ég undir sjoppueigandann."
Í þessum tengdu sögum Guðrúnar Evu eru samskipti fólks á öllum aldri í forgrunni; mæðgna, feðgina, elskenda, vinnufélaga, hyskis og góðborgara. Persónugalleríið er fjölbreytt og litríkt; Sálfræðineminn Hildugunnur, Agnar sjoppueigandi, Jósteinn múrari, trúboðarnir Austin og David frá Texas, Jóhanna sem dregst háskalega að Kára, móðurbróður bestu vinkonu sinnar, elskendurnir Sóti og Magga sem verja tíma sínum á knæpunni Dallas...
Af einstöku næmi og stílgáfu nær Guðrún Eva hér fágætri dýpt í mannlýsingum og bæði persónur og andrúmsloft sagnanna lifa með lesanda lengi á eftir.
„Hún gerir þetta af sinni ótrúlegu næmni og er svo flink í persónusköpun. ... yndislegt að lesa hana.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni
„Einhver galdur ... ofboðslega flottar sögur.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni