DNA
Yrsa Sigurðardóttir

DNA

Fullt verð 0 kr 0 kr

Ung kona er myrt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða. Radíóamatör fær sérkennileg skilaboð á öldum ljósvakans sem tengja hann við bæði fórnarlömbin. Þó þekkir hann hvorugt þeirra. DNA var ein vinsælasta bók ársins 2014 og er hér gefin út í kilju.

„Yrsa toppar þarna allt sem ég hef áður séð … Hörkuspennandi bók.“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

„Hörkuspennandi og prýðilega skrifuð.“
Sigurður G. Valgeirsson, Kiljunni

„Yrsa bregst ekki aðdáendum sínum.“ Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu

„Erfitt að leggja bókina frá sér.“
Yngvi Þór Kormáksson, bokmenntir.is

„Yrsa kann það sem mestu máli skiptir, að fylla lesandann spennu og óvissu.“ Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, Fréttatímanum

„Glæpasaga í hæsta gæðaflokki … besti glæpasagnahöfundur Norðurlanda heldur stöðu sinni … DNA er enn einn hörkukrimminn eftir Yrsu Sigurðardóttur – vel skrifuð, frumleg, frábært sögusvið, háspenna og glæsilegt persónugallerí.“ Adresseavisen í Noregi

„Yrsa verður stöðugt betri og betri.“ Demokraten, Noregi

DNA er 476 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði bókarkápu og Eyjólfur Jónsson braut um. Bókin er prentuð í Odda.


Fleiri bækur