Hrakningar á heiðavegum - Fleiri háskalegar ferðir um óblíð öræfi Íslands
Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson

Hrakningar á heiðavegum - Fleiri háskalegar ferðir um óblíð öræfi Íslands

Fullt verð 2.999 kr 0 kr
Ritröðin Hrakningar og heiðavegir í samantekt þeirra Pálma Hannessonar og Jóns Eyþórssonar hefur lifað með þjóðinni í þau 60 ár sem liðin eru síðan síðasta bindið kom út.

Hrakningasögurnar hafa haft mikið aðdráttarafl, enda í senn þrungnar háska og óbilandi þrautseigju fólks í faðmi hrikalegrar náttúru í válegum veðrum.

Fyrir jólin 2016 kom út bókin Hrakningar á heiðavegum þar sem safnað var saman frásögnum úr verkinu og seldist hún upp á örskömmum tíma. Nú hefur verið safnað saman efni í annaða bindi, grípandi og átakanlegum frásögnum sem láta engan ósnortinn. 

Úr umsögnum um Hrakningar á heiðavegum:

„Maður lifir sig gríðarlega inn í þetta, ég komst við á tveimur stöðum.“ Kolbrún Bergþórsdótti, Kiljunni

„Hér er að finna hreint magnaða lesningu af grimmri náttúru íslenskra öræfa … án efa með því besta og merkasta úr menningar- og útgáfusögu Íslendinga.“ Björgvin G. Sigurðsson, pressan.is

„Þjóðlegur fróðleikur eins og hann gerist æsilegastur.“ Egill Helgason, Kiljunni

Hrakningar á heiðavegum – Fleiri háskalegar ferðir um óblíð öræfi Íslands er 218 blaðsíður að lengd. Bjarni Þorsteinsson valdi efnið, Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Aðalsteinn Svanur Sigfússon hannaði kápu.

Fleiri bækur